|
Lífið í Litlu Stórborginni |
|
Blogg18.1.2010It´s picture timeÞá er prófageðveikin búin og ég er búin að vera fáranlega dugleg í gær og í dag að henda inn helling af myndum. Það bíða því 4 ný albúm eftir því að vera skoðuð...þannig að ef þér leiðist í skólanum/vinnunni þá....;) Er líka búin að setja nokkrar nýjar og nýlegar myndir í bumbualbúmið. Og hérna kemur 9.janúar myndin, aðeins á eftir áætlun, en ég lofa að hun var tekin á réttum tíma ;) ![]() 5 mánaða bumba Smári vill ekki að mér líði illa yfir stækkandi maganum og er því að safna í bumbu líka. Þar er bjórinn góð hjálp ;) ![]() Annars verðið þið bara að kíkja á myndirnar og lesa það sem ég skrifaði undir til að vita hvernig jólin voru hjá okkur. Nenni ekki að gera eitthvað svaka blogg. Í hnotskurn áttum við alveg yndisleg jól, hrikalega kósí að vera bara tvö ein á aðfangadag. Mæli algjörlega með því að prufa þetta. Smári toppaði síðan allt þegar hann fór á skeljarnar og bað mig að giftast sér, einsog þið flest vitið. Ég sagði auðvitað já, og við stefnum á brúðkaup innan 2 ára ;) Þetta var semsagt alveg æðislegt allt saman. Restin af jólunum fór bara í að borða (vorum reyndar ekkert voðalega dugleg við það, það var svo mikill afgangur af jólamatnum að það var eiginlega vandræðalegt, og desertinn ekki borðaður fyrren seint á jóladagskvöld), hitta gott fólk, slaka á með tærnar uppí loft (þar kom nýju skemillinn sér vel), horfa á LOTR (þar kom skemillinn sér líka vel) og LÆRA!! Vúhú. Eyddum svo áramótunum með Grétari og Önnu uppá Kagså kolleginu, og tókum þar á móti 2010, sem verður mjög svo spennandi og viðburðarríkt ár hjá okkur turtildúfunum, þar sem okkar bíður eitt stæðsta hlutverk sem maður tekur að sér í lífinu ;) Framundan er svo að pakka búslóðinni í kassa og flytja okkur uppá Kagså. Svo er að mála og pússa gólf í gömlu íbúðinni, svo við getum skilað henni af okkur í fínu standi, og þá tekur við annað próf hjá mér, klinik, og svo bara fæðingarorlof....ji hvað það verður næs. Og shit hvað þetta á eftir að líða hratt. En talandi um að vera komin í pakkann....ólétt, trúlofuð OG að flytja í úthverfi. Jiminn eini, það sem hlutirnir geta breyst á 2 árum ;) 4.1.2010ObbobbobbTalandi um að bæta á sig um jólin.... ![]() Hér eru allir hressir, sérstaklega bumbugaurinn sem er þvílíkt að styrkjast og farinn að hreyfa sig á fullu. Smári byrjaður aftur í skólanum og það styttist í prófafjör hjá mér, kem með fleiri jóla og áramótamyndir eftir það. 21.12.2009StrákamammaÞað er enginn vafi lengur, það er lítill strákur á leiðinni :) Það fór ekkert á milli mála í þetta skiptið, hann er ennþá svoldið feiminn við sónartækið reyndar, en hann var ekkert að fela typpalinginn núna samt sem áður. Bara yndislegt að fá að sjá hann aftur, og ekki verra að fá þetta á hreint. Við fönguðum auðvitað með því að fara beint í Name It og skoða strákaföt ;) ![]() strákamamman kveður í þetta skiptið ;) 20.12.200920 vikurJólin nálgast og meðgangan er hálfnuð...eigum við eitthvað að ræða það? Finnst nú alveg ótrúlegt hvað þetta er fljótt að líða, og ég veit að næstu 20 vikur eiga eftir að líða ennþá hraðar því það er svo hrikalega mikið framundan hjá okkur. Skil ekkert í fólki sem finnst 9 mánaða meðganga alltof löng....þetta flýgur áfram! við vorum í 20 vikna sónar í síðustu viku. Krílið okkar kom að
sjálfsögðu hrikalega vel útúr því, fullkomlega heilbrigt og velskapað,
allt á sínum stað. Því líður greinilega voða vel þarna inni, lá í
makindum sínum á fylgunni og slappaði af. Var ekkert mikið fyrir að
snúa sér of mikið fyrir okkur, hvað þá sýna okkur hvort það leyndist
lítill typpalingur á milli lappanna eða ekki. Þannig að við fengum ekki
að vita kynið með vissu. Og þar sem við vorum buin að taka þá ákvörðun
að fá að vita hvort kynið þetta er, og orðin mjög forvitin og spennt að
fá að vita það, þá ákváðum við að panta annan sónar á privat stofu til
að tékka betur á þessu. Við fengum tíma á morgun, mánudag, þannig að þá
kemur þetta vonandi í ljós. Vona að krílið verði í meira stuði þá ;) Við skelltum okkur til Roskilde í gær til Ödda í julefrokost á íslenska mátann. Allir komu með eitthvað á hlaðborðið og svo var étið .... já og drukkið. Við Smári erum búin að vera í bumbukeppni síðustu vikur og hefur hann hingað til unnið mig. En eftir matinn í gær sáum við að loksins, loksins, lítur út fyrir að ég sé buin að ná markmiði mínu og er komin með stærri bumbu, þó Smári nái nú að blása sína ansi vel út, sérstaklega eftir góðan mat ;) Danmörk er þakin hvítum snjó þessa dagana, og ég er ekki frá því að það hafi verið heldur meiri snjór í Roskilde en hérna í miðbæ kaupmannahafnar, enda verður snjórinn hérna fljótt að brúngráu slabbógeði. Við fengum því jólafíling beint í æð þegar við röltum útá lestarstöð í nótt á leiðinni til heim aftur. Brakandi snjórinn, jólaljós og kyrrð. Hérna er allt að verða ready fyrir jólin. Ætlum að fara á morgun eða hinn að höggva jólatré, svo vantar bara að pakka inn gjöfunum frá okkur til okkar, skreyta tréið, koma pökkunum fyrir og kaupa jólamatinn. Já og kannski aðeins að fínpússa íbúðina ;) Kem með fréttir eftir morgundaginn....verður það Smárason eða Smáradóttir??? Flettingar í dag: 30 Gestir í dag: 9 Flettingar í gær: 70 Gestir í gær: 22 Samtals flettingar: 41498 Samtals gestir: 19808 Tölur uppfærðar: 9.2.2010 17:01:46 |
Vafraðu umEldra efni Moi Nafn: Hanna Lilja OddgeirsdóttirAfmælisdagur: 19.oktHeimilisfang: KaupmannahöfnStaðsetning: DanmörkUm: Kokteilatútta í læknadeild kaupmannahafnaháskóla. Flashari með meiru. Borða papriku einsog epli og finnst tópas gott en fíla samt ekki lakkrísnammi.Tenglar
|