Lífið í Litlu Stórborginni

Blogg

25.2.2008

Heróin

Það lítur út fyrir það að heróínfíklar framtíðarinnar geti hugsanlega leytað til mín til að fá heróínskammt dagsins, það er ef þessi tilraun gengur að óskum. Lögum samkvæmt mætti  ég, ef ég væri orðin læknir núna, skrifa uppá heróín fyrir langt leidda fíkla, samt bara ef þeir eru langt leiddir. Vúhú, einmitt það sem mig myndi  langa að nota læknagráðuna mína í. En þetta mun bara vera tilraunaverkefni næstu 2 árin. Á svosem örugglega eftir að bjarga nokkrum mannslífum, þ.e. þeirra sem gætu annars lent í þessum heróínfíklum. Verður áhugavert að sjá niðurstöður úr þessu.

Skrifað 25.2.2008 kl. 22:02 af Hanna Lilja

Bein slóð á færslu

2 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

20.2.2008

Óeirðir og bænastund

Meðan ég hamaðist á crosstrainernum í ræktinni í morgun, sveitt og sexy, tóku grímuklæddir guttar sig til og sprengdu upp sólbaðsstofu í næsta nágrenni við mig. Fréttamennirnir voru ekki lengi á staðinn og hefur þyrla sveimað um hérna á österbro í allan dag og myndað allt í bak og fyrir. Sem betur fer sakaði engan, en ekki er enn vitað hvaða guttar þetta voru, eða hvort þetta var enn ein hefndaraðgerðin vegna endurbirtingar Múhameðsmyndanna frægu.

Múslimarnir voru, skiljanlega, ekki ánægðir með þetta uppátækji fjölmiðla, og hefur allt verið vitlaust hérna síðan, sérstaklega í síðustu viku, meðan skólakrakkarnir voru í vetrarfríi. Krakkagreyin höfðu greinilega ekki annað að gera en að kveikja í bílum og húsakynnum útum allan bæ. Bara svona aðeins að hrekkja stjórnendur landsins. En núna er vetrarfríið búið, og því eitthvað farið að róast í Litlu stórborginni, nema í Ishöj, þar sem nokkrir skólar eru með frí þessa viku, en ekki síðustu. Hvar eru foreldrar þessara barna?? Maður spyr sig. Er ekki frekar óeðlilegt að ungdómur nútímans hafi ekkert annað að gera en að kveikja í eigum annarra þegar það er vetrarfríi í skólanum? Mér er alveg sama þótt einhver hafi birt einhverja skrípómynd af Múhameð, það er engin afsökun fyrir að krakkarnir vaði um og kveiki í bílnum hjá saklausum nágrannanum. Og ef Múslimar ætla að mótmæla, er það þá ekki frekar í verkahring fullorðinna manna, frekar en óharðnaðra unglinga? Við erum að tala um grunnskólakrakka hérna. 

Það hafa reyndar ekki bara verið læti og óeirðir vegna þessarra birtinga. Á leiðinni heim úr skólanum á föstudaginn fylltist ég óstjórnlegri löngun í kebeb, og ákvað að koma við á St.Hans Torv. Það var stappað af fólki og fréttamenn um allt. Komst að því aðeins seinna að þarna fóru fram friðsamleg mótmæli, undir stjórn fullorðinna manna. Þar sem Torgið var fullt af múslimum í mótmælahug voru kebebstaðirnir í kring allir stappaðir líka. Ég komst þó að, og spjallaði aðeins við 4 múslima sem sátu inni að borða, enda svangir eftir öll mótmælin. Meðan ég beið svo eftir kebbanum mínum, kom inn ungur múslimi, frekar örvæntingarfullur, hálf skjálfandi. Spurði hvort hann mætti biðja. Eiganda staðarins fannst ekkert sjálfsagðara, enda sjálfur múslimi. Fór bakvið, sótti samanbrotinn pappakassa og lagði á gólfið útí horni. Örvæntingarfulli maðurinn lagðist svo á hnéin, hummaði og hammaði, og tilbað Múhameð af áfergju. INNÁ MIÐJUM KEBABSTAÐ. Einsog ekkert væri eðlilegra. Og á meðan stóð ég agndofa og horfði á. Þangað til maturinn minn var ready og ég dreif mig heim. Alltaf er maður að upplifa eitthvað nýtt.

Skrifað 20.2.2008 kl. 15:41 af Hanna Lilja

Bein slóð á færslu

4 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

14.2.2008

Hundamamma á barmi taugaáfalls



Því verður ekki neitað að hann er sætur hann Jojo. Ég ætla ekkert að þræta fyrir það. Reyndar orðinn aðeins stærri og loðnari núna. En alveg er hann að fara með geðheilsuna mína þessa dagana. Eigendurnir, Sigga frænka og fjölskylda, skelltu sér á skíði til ítalíu í vetrarfríinu, og tók ég, í sakleysi mínu, að mér að hlutverk að passa hús og hund á meðan. Hundurinn er sjálfstæður og þver, það er sko his way or no way.  Úti í göngutúr áðan vildi hann fara aðra leið en við vorum að fara, og þegar ég hélt áfram í "öfuga" átt, að hans mati, lagðist hann í götuna og spyrnti á móti. Ef ég skamma hann þá urrar hann á mig, og ef ég neita að hleypa honum uppí sófa glefsar hann í mig. En ég er þver á móti, og ætla sko ekki að leyfa honum að komast upp með það sem hann kemst greinilega upp með dagsdaglega, reyni að sýna honum hver ræður með því að beita djöflaröddinni minni, sem ég vissi btw ekki að ég ætti til. Því er ekki að neita að hann er skárri en hann var í byrjun viku, en þver og frekur er hann ennþá og já, hann heldur ennþá að ísskápurinn og stofugólfið sé klósettið hans. Ég efast um að ég nái að gera eitthvað kraftaverk á næstu 2 dögum, en ég hugsa að ég bendi eigendunum vinsamlega á að að fara með hann í hvolpaþjálfun. Einsog maðurinn sem sá til okkar við söerne í dag sagði, það er eitthvað að þessum hundi. Hef aldrei séð annað eins.  Þetta tekur á taugarnar. Svo ég tali nú ekki um allt annað sem er í gangi í augnablikinu.

Flutningar eru orðnir að veruleika, og er planið að vera komin í íbúðina 15.mars. Þann 17.mars munum við Helga síðan leggja af stað í ævintýraferð til Dubai þar sem við ætlum að eyða páskunum hjá franska vini hennar sem ég man ekki hvað heitir. Jújú, miðarnir komnir í hús og allt að gerast. gaman gaman.

Þann 8.mars, þarna mitt inná milli lestarbrjálæðis og flutninga verður haldin glæsilegasta árshátíð í sögu FÍLD. Ég kom mér að sjálfsögðu í árshátíðarnefnd, þannig að einhverstaðar inní þéttskipaða dagskrá næsta mánaðar verð ég að koma árshátíðarundirbúningi og öðru stússi kringum það. Ég er nú samt sem betur fer kominn með kjólinn. Það færi nú alveg með mig að eiga það eftir, ofan á allt annað.

Ég fékk annars óvænta og skemmtilega símhringingu áðan alla leið frá Indlandi. Það er nú ekki allir sem fá valentínusarkveðju yfir hálfan hnöttinn, finnst það svoldið sætt. Gaman að fólk muni eftir manni þó fjarlægðin sé mikil.


Roy og ég í hjólataxa i Singapore

Er ekki alltaf tilboð á mexibar á fimmtudögum? er ekki málið að fara út og skála í tilefni dagsins.....

Skrifað 14.2.2008 kl. 16:55 af Hanna Lilja

Bein slóð á færslu

2 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

7.2.2008

It´s been a long time

Ég hef sagt það áður og ég mun segja það aftur. Maður er alltaf að græða. Rambaði peningalaus og allslaus inní Topshop á laugardaginn var, sá fallegasta kjól ever á slá. 799 dkk. Ekki alveg málið þar sem ég vissi ekki ennþá hvort ég hafði náð prófum eða ekki, og vissi þar með ekki hvort námslánin myndu skila sér í vasann. Aldrei þessu vant var ég skynsöm og fór heim. Þessi kjóll er búinn að ásækja mig í draumum mínum hverja nótt síðan. Lofaði sjálfri mér að fara og máta kjólinn ef ég skyldi ná prófinu. Þriðjudaginn 5.febrúar kl.12.35 loggaði ég mig inná punkt.ku (ugla kaupmannahafnarháskóla) og þar blasti það við. Ég náði þessu helvítis vibba prófi. Og er þar með orðin 1/3 læknir...og finnst það bara frekar töff. Hjólaði því á nýja, fallega fáknum mínum  niður á strik í dag. Mæti í topshop, finn kjólinn....199 dkk. Og til í minni stærð. Það var nátturlega ekki spurning, ég er komin með árshátíðarkjól. Bætti bol við, en borgaði samt minna en andvirði kjólsins. Alltaf að græða.

En það er langt síðan síðast, og margt búið að breytast. Ekki nóg með það að ég sé 1/3 læknir sem þeysist um götur kaupmannahafnar á nýjum glansandi fák, heldur er ég að fara að flytja. Sagði upp íbúðinni á kolleginu í dag, og flyt í glæsilega nýuppgerða íbúð á Ravnsborgsgade þann 15.mars, ásamt Helgu vinkonu. Nýja single&fab íbúðin okkar :) vúhú. mikil spenna í gangi.

Auk allra breytinga hefur líka margt skemmtilegt gerst. Fór á skauta með bekknum




Söng í singstar (gerist næstum aldrei)





Fékk Auði og unnar í heimsókn



Drukkum fullt af bjór





'Eg gerðist dúfukona



Tókum á móti Evrópumeisturum í handbolta á Rådhuspladsen (ásamt 2500 stoltum dönum)



Drukkum coctail in a fish bowl. Það var upplifun.


Ég setti myndir frá útskriftarferðinni til Króatíu 2004 inní albúm. Já útprentaðar myndir inní alvöru old times albúm. Það var verkefni sem var buið að sitja á hakanum, já í næstum 4 ár. Verð bara að segja að mér finnst ég hafa nýtt þetta frí vel, náði að slaka á og var temmilega skynsöm, ekkert að spreða að óþörfu (á það svoldið til) og bara buin að hafa gaman saman.

Margt nýtt framundan, ný önn, nýtt fallegt heimili, nýtt ferðalag, endurnýjaður vinskapur, ný vinna að öllum líkindum. Bara gaman. Verður gaman að þeysast inn í næstu mánuði á svarta fáknum





Skrifað 7.2.2008 kl. 21:35 af Hanna Lilja

Bein slóð á færslu

6 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 18
Gestir í dag: 8
Flettingar í gær: 26
Gestir í gær: 13
Samtals flettingar: 43551
Samtals gestir: 20539
Tölur uppfærðar: 21.3.2010 13:23:01

Vafraðu um

Nafn:

Hanna Lilja og Smári

Heimilisfang:

Kaupmannahöfn

Staðsetning:

Danmörk

Tenglar