|
Lífið í Litlu Stórborginni |
|
Blogg3.3.2008Stelpan í skápnum Það var ikea ferð í gær. Ekki uppáhaldið mitt, en vegna yfirvofandi flutninga var það nauðsynlegt, mig vantaði fataskáp og fleira smotterí. Mig grunar að tvíburafélag Gentofte hafi verið með hópferð í ikea, er ekki frá því að ég hafi séð 5 eineggja tvíburapör á þessum fáu klukkutímum sem ég var þarna inni, allir undir 3 ára. En Helga flutti semsagt inn um helgina, og foreldrar hennar voru í kaupmannahöfn að aðstoða hana, svo ég dreif mig með þeim í hnullabúðina. Ég komst að því að ég hef enn ekki losnað við Ikeahnútinn. Ég fékk gamalkunnan hnút í magann um leið og ég kom að kassanum. Og í gær fékk ég neitun á visakortið mitt, ofan á allt annað. Great. Mig langaði mest að hverfa inn í nýja fína skápinn sem lá á kerrunni við hliðiná mér. Hef samt ekkert notað kortið á þessu tímabili, en þetta gerist víst stundum með svartakortið svona um mánaðarmót, aður en síðasta tímabil er gert upp. En það reddaðist, sem betur fer og ég labbaði út, sáttur skápaeigandi. Á leiðinni heim komum við við í Lyngby og sóttum burðardýrið mitt. Einhver þurfti að aðstoða okkur við að koma hnullanum upp í nýju íbúðina, á 6.hæð...Og það er EKKI lyfta. Hlakka geðveikt til að flytja allt hitt dótið mitt ;) Helga er búin að koma sér voða vel fyrir og get ég ekki beðið eftir að flytja sjálf, og fara að innrétta nýja herbergið mitt. Það var keyptur risa svefnsófi, krossum bara fingur og vonum að hann komist fyrir. Það er allavega gistipláss fyrir fólk ef það vill krassa. En bara fólk sem okkur er vel við ;) Held þetta verði voða kósí. Nýja Single&fab íbúðin...vúhú. Fortsat god mandag. 1.3.2008Er lægð yfir landinu?Það hefur gengið á með stormum hérna í kaupmannahöfn undanfarna viku. Mjög skemmtilegt þegar maður þarf að vera á flandri um allan bæ að redda hinu og þessu fyrir flutninga og annað, til viðbótar við skólastússerí. Náði þó að atorka helvíti miklu, þrátt fyrir mótvind, enda hafði ég Smára með mér í þessu öllu saman. Það var keypt málning og flutningadóterí, pappakassar, bobbluplast, og fleira skemmtilegt. Núna hef ég varla pláss fyrir sjálfa mig í íbúðinni, þar sem þetta dóterí er ansi fyrirferðarmikið. ![]() ![]() Komum líka við í einhverri Vöðvamassabúð. Mér leið einsog kettlingi þarna inni. Proteindunkar á stærð við 10 lítra málningadolluna sem ég hafði keypt fyrr um daginn. En það styttist í Dubai, og þá er ekkert annað í stöðunni en að taka smá átak í ræktinni og matarræðinu, og labbaði stelpan því ánægð út með proteindunkinn sinn. Ákvað þó að láta einn lítinn nægja, allavega til að byrja með. Núna er bara planið að verða köttuð í drasl og tönuð í rusl fyrir dubai....og já ég var að horfa á Næturvaktina ef þið voruð að pæla í því. Þessi bóla er aðeins seinna á ferðinni hérna í köben. Ég komst að því að aukinni proteininntöku fylgir mikið loft, og fyrstu dagana ropaði ég hægri vinstri, mjög gaman að vera með mér þá ;) En þetta er skemmtileg áskorun. Hver veit nema ég vinni átakið í prjónaklúbbnum Hallgerði og verði orðin svona áður en ég veit af. ![]() Eftir svona viku er ekkert betra en að fá sér smá rauðvín í góðra vina hópi á föstudagskvoldi, en eftir öll átök vikunnar og breytt matarræði var rauðvínið ekki lengi að kikka inn. Addý og Miss G buðu sambýlingum sínum á 1.hæð í ekta íslenskan þorramat, og fengum við Tinna að fljóta með. Þar var að sjálfsögðu hákarl og brennivín, sem dönunum bar skylda til að smakka. Ekki gat íslendingurinn ég verið minni kona, og gleypti þetta ógeð einsog pillu og kyngdi með brennivíni. Ég fæ bara gæsahúð af að rifja þetta upp. Ég ældi þó allavega ekki. Í kvöld eru síðan tónleikar með sprengjuhöllinni og hjaltalín, svo það er óhætt að segja að þetta sé svona íslensk helgi. Over and out. Hannzý Flettingar í dag: 1 Gestir í dag: 1 Flettingar í gær: 53 Gestir í gær: 17 Samtals flettingar: 43246 Samtals gestir: 20409 Tölur uppfærðar: 14.3.2010 00:20:26 |
Vafraðu umEldra efni Tenglar
|