Lífið í Litlu Stórborginni

Blogg

26.6.2008

Vúhú

Loksinsloksinsloksins...ég get ekki sagt annað. Loksins er þetta búið. Og ég lifði þetta af, shjátát fyrir mér ;) Prófið gekk sæmilega, tveir hlutar gengu mjög vel, en einn var svoldið nasty. Það má eiginlega segja að þetta séu 3 in 1 próf, verið að testa 3 fög, og ég þarf að ná öllum hlutum til að ná prófinu...ef ég fell í einum, þá þarf að taka allt aftur. Vúhú. En ég ætla sko ekkert að falla í þessu, hef ekki fallið hingað til og ætla ekkert að fara að byrja á því núna. Þeir hljóta að sjá hvað ég er hrikalega gáfuð og láta mig ná, þrátt fyrir þessa helvítis energiomsætning.

Ég fór beint eftir prófið með Önju og Rönsu og drakk einn bjór, sem var ekki lengi að kikka inn og við vorum orðnar nett tipsy um leið, farnar að flissa og alles. Lögðum ekki í annan. Anja vildi bara fara heim og knúsa barnið sitt og við Ransa fórum að versla....frekar óhagstætt þar sem dönsku peningarnir mínir eru búnir og ég er að mjólka íslenska kreddann, en mjöööög nice samt sem áður. Ég kom dauðþreytt heim, en það er eiginlega enginn tími til að slappa af. Ég á víst pantað flug til íslands annaðkvold, og er því á billjón akkúrat núna að velja hvaða föt fá að fylgja mér til íslands, og hvað verður eftir og passar íbúðina. Það er meira en að segja það sko.

Ég stefni á að vera búin með þetta verkefni fyrripartinn á morgun, svo ég nái nú að tjilla smá áður en ég legg af stað útá völl. Er ýkt spennt að koma til íslandsins míns....Þetta sumar leggst hrikalega vel í mig.

Skrifað 26.6.2008 kl. 20:13 af Hanna Lilja

Bein slóð á færslu

1 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

25.6.2008

MARKAÐSSETNING MEÐ ÖLLU TILHEYRANDI




Fólk biður oft um útskýringu á markaðssetningu. Jæja hér kemur hún:


*Þú sérð flottan gaur í partýi. Þú ferð upp að honum og segir: "Ég er frábær í rúminu."
Þetta er bein markaðssetning.


*Þú ert í partýi með fullt af vinum og sérð flottan gaur. Ein/n af vinum þínum fer upp að honum, bendir á þig og segir"
"Hún er frábær í rúminu."
Þetta er auglýsing.


*Þú ert í partýi og sérð flottan gaur. Þú labbar upp að honum, færð símanúmerið hans, hringir í hann daginn eftir og segir:
"Hæ, ég er frábær í rúminu."
Þetta er símamarkaðsetning.


*Þú ert í partýi og sérð flottan gaur, þú lagar til fötin þín, labbar upp að honum og réttir honum glasið þitt og segir við hann:
"Fyrirgefðu, má ég??" Lagar bindið hans, nuddar létt yfir hálsinn á honum, og segir;
"Ó á meðan ég man, ég er frábær í rúminu.
Þetta eru almannatengsl.


*Þú ert í partýi og sérð flottan gaur. Hann labbar upp að þér og segir:
"Ég hef heyrt að þú sért frábær í rúminu."
Þetta er þekkt vörumerki.


*Þú ert í partýi og sérð flottan gaur. Honum langar í þig en þú færð hann til að fara heim með vinkonu þinni.
Þetta er söluorðspor.


*Vinkona þín getur ekki fullnægt honum, svo hún hringir í þig.
Þetta er tækniaðstoð.


*Þú ert á leið í partý þegar þú uppgötvar að það gætu verið flottir gaurar í öllum þessum húsum sem þú ert að labba framhjá.
Svo þú klifrar upp á þakið á einu af þessum húsum, sirka í miðjunni og öskrar úr þér lungun: "Ég er frábær í rúminu."
Þetta er ruslpóstur

Skrifað 25.6.2008 kl. 12:06 af Hanna Lilja

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

24.6.2008

Lítil prinsessa mætt á svæðið

23.júní 2007, fyrir rétt rúmu ári síðan, rann ég útúr Parken með Herdísi og Auði, eftir hrikalega heita tónleika með Justin Timberlake.





23.júní 2008, eru aðstæður orðnar svoldið öðruvísi. Að kvöldi 22.júni ákvað þetta litla krútt að láta sjá sig, eftir 9 mánaða dvöl í bumbunni á Herdísi. 15 merkur og 49,5 cm.




Elsku Herdís og Siggi, innilega til hamingju með litlu dótturina. Hlakka mikið til að sjá myndir af henni fyrir utan hellinn, og in person um næstu helgi.


ps. bara tveir dagar eftir...lokasprettur...GO ÉG!!!

Skrifað 24.6.2008 kl. 7:25 af Hanna Lilja

Bein slóð á færslu

1 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

19.6.2008

One down, one to go

Snillingurinn kærastinn minn kláraði adgangskursus DTU með stæl á þriðjudaginn, og eftir viku verð ég líka búin með þetta brjálæði. Einsgott að það verði sanngjarnara en prófið í gær.

Ég er ýkt öfundsjúk útí fólk sem er komið í sumarfrí núna. Ég sakna íslands og langar að komast þangað NÚNA....

Þetta lag kemur mér samt aftur í gott skap...

Skrifað 19.6.2008 kl. 12:18 af Hanna Lilja

Bein slóð á færslu

1 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

13.6.2008

Fredag den 13.

Skoða nánar

12.6.2008

Það er byrjað

Skoða nánar

11.6.2008

vika í fyrsta próf

Skoða nánar

3.6.2008

Ótitlað

Skoða nánar

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 8
Gestir í dag: 3
Flettingar í gær: 26
Gestir í gær: 13
Samtals flettingar: 43541
Samtals gestir: 20534
Tölur uppfærðar: 21.3.2010 11:03:15

Vafraðu um

Nafn:

Hanna Lilja og Smári

Heimilisfang:

Kaupmannahöfn

Staðsetning:

Danmörk

Tenglar