Lífið í Litlu Stórborginni

Blogg

29.9.2008

Að verða afi áður en maður verður pabbi....hljómar ekkert illa.

Monika og Kalli vinir okkar eiga alveg hrikalega sniðuga litla dóttur. Hún heitir Korka og er alveg að verða 2 ára. Hún á einn afa sem heitir Emil og einn sem heitir Smári, og þegar hún var kynnt fyrir mínum Smára í fyrsta skipti fór hún strax að kalla hann afa (enda smári frekar erfitt orð þegar maður er að byrja að tala) Okkur fullorðna fólkinu (jújú, núna er maður víst kominn í þann flokk) finnst þetta nátturlega fáranlega fyndið og það liggur við að við pissum í okkur úr hlátri í hvert skipti sem hún kallar á hann. Litla skottan er alveg búin að átta sig á því að það er eitthvað fyndið við það þegar hún kallar hann afa, þannig að hún gerir alveg í því að kalla á hann.

Á föstudagskvöldið fórum við smári í heimsókn til þeirra til að passa Korku meðan foreldrafólkið fékk að fara í party, og um leið og við komum inn heyrðist bara "HÆ AFI" Korka ýkt glöð að sjá hann.´(henni var hins vegar alveg sama um það að ég var þarna, þótt hún hafi þekkt mig miklu lengur)  En meðan við vorum að borða varð hún alltí einu pínu ringluð og fór að kalla hann Emil....sem er örugglega mjög rökrétt í 2 ára huga....ég meina, hann er Afi! Ég sá einu sinni málsgrein sem hljómaði svona: "ef ég hefði vitað að barnabörnin væru svona skemmtileg, þá hefði ég eignast þau fyrst" Smári er kannski bara að upplifa drauminn?

En við vorum ekki bara að passa barnið, því Monika og Kalli eru nýbúin að fá sér kött. Og ekki neinn venjulegan heimilskött...neinei, það er ekkert í boði. Við erum að tala um hárlausa kisu...jibb, alveg hárlaus. þEgar ég frétti þetta fyrst stóð mér ekki á sama, fannst þetta frekar krípí. En þegar ég hitti dýrið á föstudaginn, þá varð ég bara ástfangin og mér snérist algjörlega hugur. Hrikalega skemmtilegur karakter, forvitin og þvílíkur leikur í henni. Og stæðsti kosturinn...engin kattahár útum allt. Lov it. SMári varð alveg jafnhrifinn, ef ekki hrifnari, og erum við harðákveðin í því að fá kettling hjá þeim ef þau láta hana fjölga sér.Kötturinn var líka voðalega hrifinn af smára, og kom sér vel fyrir í klofinu á honum meðan við lágum í sófanum yfir Mr. and Mrs. Smith. Það liggur við að ég hafi fundið fyrir smá afbrýðisemi. 




Skrifað 29.9.2008 kl. 11:45 af Hanna Lilja

Bein slóð á færslu

3 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

19.9.2008

fertugsafmæli ;)

FLottustu bræðurnir á Íslandi, og þó víðar væri leitað, eiga stór afmæli í dag. tvisvar sinnum tuttugu ára risa afmæli.....samtals fertugsafmæli heheh ;) Þegar þetta er skrifað eru þeir á fullu að leggja lokahönd á "lookið", svo er stefnan tekin í party aldarinnar (að þeirra sögn....gangi þeim vel að toppa bleikahattaþemaafmælispartyið mitt í fyrra) ...en hvort sem þeim tekst það eða ekki þá er stóra sys frekar súr yfir að missa af herlegheitunum....verð bara með í anda...



TIL HAMINGJU MEÐ DAGINN GÖMLU MENN- skemmtið ykkyr ýkt vel í kvöld ;)



ps. á í smá tilvistarkreppu í augnablikinu....mér líður alltaf einsog ég sé bara 21 árs, en þar sem litlu bræðurnir (sem eru löngu orðnir hærri en ég) eru orðnir 20 ára þýðir það víst að ég er að verða 24 eftir mánuð...sem þýðir að það eru bara 13 mánuðir í 25 ára...og þá þarf maður að fara að punga út börnum og svona....úff, mér finnst ég ekki vera 25 ára sko.



Skrifað 19.9.2008 kl. 19:01 af Hanna Lilja

Bein slóð á færslu

10 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

19.9.2008

Föstudagsdúfur

Mikið rosalega er ég fegin að það er kominn föstudagur. Ég veit að helgin á eftir að þjóta hjá einsog ekkert sé, en samt, föstudagar eru svo ljúfir. Meirað segja dúfurnar sem tóku á móti mér útá gangstétt í morgun, áður en ég settist uppá fákinn minn kl. 7.21 í morgun, þær voru eitthvað svo ljúfar. Ég er búin að vera voða dugleg að hjóla uppá hvidovre þessa vikuna, tekur ca 70 min fram og tilbaka. Sumum finnst þetta kannski ekki langur hjólatúr, en ég er bara ekki vön að hjóla svona langt fram og tilbaka á hverjum degi. En þetta er fljótt að venjast og bara fínasta workout þar sem leið mín liggur að sjálfsögðu upp einu brekku kaupmannahafnar, ef ekki bara Danmerkur. En ég er ekki frá því að ég hafi verið aðeins fljótari í dag en ég var á mánudaginn....þetta verður allavega auðveldara með hverju skiptinu.

Við smári fengum bókaðar tvær heimsóknir í gær. Greinilegt að Iceland express var með eitthvað svaka heitt tilboð í gær. Fyrst hringdi Hörðu vinur smára og spurði hvort hann og Ragnhildur kærastan hans, sem við vorum mikið með í sumar, mættu ekki koma í heimsókn um miðjan okt. Það hentar bara voða vel, þar sem við erum akkúrat í vetrarfríi og vegna geðsjúklegrar veikingar íslensku krónunnar síðusta daga sjáum við ekki framá að hafa mikinn pening extra til að ferðast eitthvað. Þá er bara fínt að fá fólk í heimsókn í staðinn. Þetta hittir líka akkúrat á afmælið mitt, þannig að það verður bara stuð. Hálftíma seinna hringdi svo Kolbrún frænka, sem ætlar að koma til okkar 6.nóv með Hilla kærastanum sínum. Siðustu helgina í nóv koma svo mamma og pabbi í aðventuferð. Þannig að það er nóg að gera, Davíð bróðir og kolla kærasta hans væntanleg eftir 2 vikur, úff maður hefur varla tíma til að vera í skóla :P Þetta pressar mann bara til að vera skipulagður, og drullast til að skrifa þessa blessuðu bachelorritgerð tímanlega. Við erum allavega rosa glöð að fá svona mikið af góðu fólki í heimsókn og erum ready í allt. Held samt að við setjum punktinn hérna, en fleiri gestir hjartanlega velkomnir eftir áramót með hækkandi sól :)


Í góðu geimi síðasta laugardagskvold (entumst í bænum til 23.30....er hægt að vera mikið aumari ?? )

 

Skrifað 19.9.2008 kl. 10:31 af Hanna Lilja

Bein slóð á færslu

2 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

5.9.2008

Myndaflóð

Time flies og án þess að ég taki eftir því er ég buin að vera í Dk í tvær vikur. Stuðstuð. Hér er ennþá um 20 stiga hiti og bara rosa nice. Föstudagur í dag, Helga er að lenda á kastrup þegar þetta er skrifað, þannig að ég verð ekki ein í kotinu lengur, afmæli hjá Eygló í kvöld og svaka stuð. Annars bara tjill um helgina þar sem skólinn byrjar á fullu á mánudaginn á Hvidövre Hospital, vúhú. Hlakka til að byrja í nýju umhverfi.

Eeeen, aðalástæðan fyrir þessu bloggi er að ég er LOKSINS búin að henda inn nýjum albúmum frá í sumar...einsog er eru komin 3 stykki, og fleiri á leiðinni. Ég nenni ekki að gera svona myndasumarsögublogg, þannig að þið verðið bara að skoða myndirnar og lesa textan sem ég hef skrifað við....það er sumarið í hnotskurn :) Og endilega kommentið við myndirnar.

Fortsat god fredag :)

Skrifað 5.9.2008 kl. 10:18 af Hanna Lilja

Bein slóð á færslu

1 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 5
Gestir í dag: 2
Flettingar í gær: 54
Gestir í gær: 22
Samtals flettingar: 43592
Samtals gestir: 20555
Tölur uppfærðar: 22.3.2010 08:11:16

Vafraðu um

Nafn:

Hanna Lilja og Smári

Heimilisfang:

Kaupmannahöfn

Staðsetning:

Danmörk

Tenglar