Lífið í Litlu Stórborginni

Blogg

8.10.2008

Síðasti geitungur sumarsins

Síðasti geitungur sumarsins flaug utaní mig þar sem ég hjólaði heim frá Hvidovre seinnipartinn í dag. Ég hélt nú að þeir ættu allir að vera dauðir svona seint að hausti, var ekki alveg að fíla þessa innrás á my personal space, en það er svosem ennþá hálfgert sumar í lofti, sól og blíða og um 15 stiga hiti. Geitungurinn var reyndar ekkert svo hrifinn af mér og flaug fljótt burt sem betur fer, og ég hélt áfram að hjóla, á fáknum sem sendir frá sér mjög svo undarlegt engissprettuhljóð þessa dagana. Veit ekki alveg hvað það er, en það var ágætt þar sem ipodinn gleymdist heima í dag.

Fyrsta í gestahelgi er liðin, og Davíð og Kolla farin heim í kreppuna aftur. Við áttum voða fína og notalega helgi. Okkur var boðið í mat tvö kvöld í röð, sem er ágætt þar sem krónan er ekki sérlega hagstæð til að fara útað borða....af sömu ástæðum var ekki mikið verslað (þó smá....það er nú ekki hægt að sleppa H&M) En við kíktum í dýragarðinn og röltum um í góða veðrinu og fórum í eitt innflutningsparty og svona...voða gaman. Davíð gerði heiðarlega tilraun til að gera smára að brettatöffara.....



En við vorum öll sammála um það að hann væri bara ágætur eins og hann er....hann er bara ekki alveg þessi húfutýpa.

Ég var nú ekkert voðalega dugleg með myndavélina þessa daga, veit ekki hvað er málið. Kannski maður sé ósjalfrátt farinn að halda að sér á öllum sviðum.Ég náði þó að festa smá brot á stafrænt form. 



Það var akkúrat matartími hjá öllum dýrunum....




Við urðum bara svöng af að horfa á allt þetta át og tókum pulsupásu.

 

Ég þakka myndarlega parinu fyrir frábæra helgi og Davíð fyrir fallega hálfa kjólinn sem hann gaf fátæku systur sinni...og vona að krónan verði aðeins hagstæðari þegar þau koma næst.

Talandi um krónuna (veit að ég er búin að minnast nokkrum sinnum á hana í færslunni) Ég er að reyna einsog ég get ekki að fylgjast með þessu drama sem er að eiga sér stað á íslandi akkúrat núna, en það er bara ekki hægt. Hvar sem ég fer og hvað sem ég geri....þetta er allstaðar. Ég opna tölvuna. þetta er á mbl.is. ég kveiki á sjónvarpinu. Ísland er aðalfrétta efnið á TV2. ég fer í ræktina. þar er kveikt á útvarpinu....og hvað er verið að ræða. Og CNN með fréttir af íslandi. Krise krise krise. Og svo fer ég inná heimabankann og ætla að millifæra peningana mína til danmerkur til að geta keypt í matinn en nei...það er búið að loka á öll gjaldeyrisviðskipti í bili....peningarnir mínir eru fastir á íslandi og ég þarf að lifa í Danmörku. Frábært. En það þýðir víst lítið að væla...ég ætla bara að anda djúpt og lifa á haframjöli og því sem er til í frystinum (sem betur fer sendi mamma íslenskan fisk með Davíð, og fékk meirað segja smá humar með, þannig að ég ekkert að fara að svelta...Takk mamma :))

Ég segi bara einsog sagt var í The Dark Knight.....það er alltaf dimmast rétt fyrir sólarupprás :) Thank god fyrir að það sé ennþá svona bjart og fallegt veður. Það var kannski bara jákvætt eftir allt saman að rekast á þennan blessaða geitung í dag.

 

Skrifað 8.10.2008 kl. 17:04 af Hanna Lilja

Bein slóð á færslu

4 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 5
Gestir í dag: 1
Flettingar í gær: 26
Gestir í gær: 13
Samtals flettingar: 43538
Samtals gestir: 20532
Tölur uppfærðar: 21.3.2010 05:15:55

Vafraðu um

Nafn:

Hanna Lilja og Smári

Heimilisfang:

Kaupmannahöfn

Staðsetning:

Danmörk

Tenglar