Lífið í Litlu Stórborginni

Blogg

28.11.2008

Læknanemamóðursýki?

Það hefur oft verið sagt um læknanema að þeir þjáist af því sem þeir eru að læra hverju sinni. Síðust fjórar vikur hef ég verið í mikrobiologi, semsagt að læra um hinar og þessar bakteríur, vírusa, sveppi, orma og aðrar pöddur sem valdið geta kvillum hjá okkur mannfólkinu. Og það þarf ekki að spyrja að því. Ég á voða fína Chiliplöntu sem ég fékk í afmælisgjöf. Hún hefur staðið sig mjög vel í að gefa okkur ferskan chili í matargerðina, og núna viljum við ekkert nema mjög bragðsterkan mat. En þegar ég ætlaði að fara að vökva hana í fyrradag brá mér heldur betur í brún. Plantan var öll þakin einhverju sem líktist hvítu ryk-kuski, og þetta ryk var líka útum allt í moldinni. Ég fattaði náttla ekkert strax hvað þetta var, rýndi alveg í þetta í smá tíma, og þá sá ég hvað þetta var. BLAÐLÝS!!!! í eldhúsinu mínu. Frábært alveg. Og ég akkúrat búin að vera að lesa um lýs sem smitast yfir í menn og valda einhverju ógeði. OH HOLLUR. 

Plöntunni var hent med det samme, (sorry Thea og Mona, mér fannst mjög leiðinlegt að henda henni)  sem og öllu öðru sem var í kring og eldhúsgluggakistan sótthreinsuð. Ég vil samt ekki meina að þetta sé einhver móðursýki tengd því sem ég hafði verið að lesa...þessar pöddur voru þarna í alvöru!!! Ég meina, í dag var ég að lesa um blóðeitrun og lungnabólgu...og ég þjáist af hvorugu....ennþá ;) 


Skrifað 28.11.2008 kl. 14:30 af Hanna Lilja

Bein slóð á færslu

2 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

22.11.2008

Þá kom veturinn

Veturinn kom í kaupmannahöfn í gær. Hitastigið féll niður um 6 gráður og það fór að snjóa. Með snjónum kom jólaskapið og sem betur fer er léttbylgjan farin að spila jólalög, nokkrum dögum á undan dönsku útvarpsstöðvunum. Létt hljómar því allan daginn á þessum bæ. Mér finnst bara kósí að það sé kominn betur, bjart og kalt vetrarveður er uppáhalds.

Síðan síðast höfum við smári fengið margar heimsóknir, við pössuðum hund í viku, fórum á Bubbatónleika, ég varð 24 ára, ég eignaðist Tuborgjólagalla (kannski það verði bara jóladressið í ár...er ekki kreppa?), ég skrifaði Bachelorritgerðina mína, og skilaði henni í síðustu viku, Og það þýðir víst að ég er að verða hálfnuð með námið í janúar, og var því að skrá mig í candidatinn....og þarf að fara að velja hvert ég vil fara í klinik í febrúar. Jiii hvað þetta er spennó allt saman. Síðustu 3 vikur er ég búin að vera á kafi í bakteríum og vírusum, rækta þetta og rækta hitt, sýkja frumur og greina vírusa. Hressandi. 

Ég ætla annars ekkert að hafa þetta langt nuna, var að skella inn nokkrum myndum frá okt og nóv, segir allt sem segja þarf. Ætla að fara fram að knúsa kallinn minn

Skrifað 22.11.2008 kl. 20:24 af Hanna Lilja

Bein slóð á færslu

3 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 7
Gestir í dag: 4
Flettingar í gær: 54
Gestir í gær: 22
Samtals flettingar: 43594
Samtals gestir: 20557
Tölur uppfærðar: 22.3.2010 09:38:42

Vafraðu um

Nafn:

Hanna Lilja og Smári

Heimilisfang:

Kaupmannahöfn

Staðsetning:

Danmörk

Tenglar