Lífið í Litlu Stórborginni

Blogg

28.12.2008

Vegir lífsins

Fyrir ári síðan sat ég á B5 með nokkrum vinkonum með gott hvítvín við hönd. Það var langt síðan við höfðum hist allar þar sem tvær okkar búa erlendis, og það vantaði því ekki umræðuefnin. Við ákvaðum að færa okkur um fet og settumst á Vegamót þar sem við fengum okkur einn drykk í viðbót og spjallið hélt áfram. Þegar við vorum að fara að huga að brottför heim á leið labbaði gamall vinur minn inn, sem ég hafði ekki séð í 5 ár. Ég fékk smá hnút í magann. Hann virtist glaður að sjá mig og við spjölluðum stuttlega saman. Þegar við fórum að grenslast fyrir um hvað hinn aðilinn var að gera í lífinu komumst við að því að við vorum bæði í námi í Kaupmannahöfn. Við ákváðum því að hittast aftur í DK eftir jól og fá smá catch-up á það sem á daga okkar hafði drifið síðustu 5 árin.

Við gerðum það og vorum ekki lengi að endurvekja gamla vináttu, það var næstum einsog við hefðum talað saman á hverjum degi allan þennan tíma. Tíminn leið, og vináttan þróaðist síðan útí eitthvað miklu meira og dag, ári eftir að við hittumst aftur, er þessi gamli vinur minn aðalmaðurinn í mínu lífi og ég gæti ekki verið hamingjusamari.

Ég get ekki lýst því hvað ég er þakklát fyrir að vinir hans keyptu flugmiða fyrir hann heim til íslands síðustu jól og skipuðu honum að koma heim, annars hefðum við kannski aldrei hist aftur...eða þá við hefðum hist annarstaðar fyrir tilviljun, á götum kaupmannahafnar kannski? Maður veit aldrei.

Skrifað 28.12.2008 kl. 15:21 af Hanna Lilja

Bein slóð á færslu

1 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

22.12.2008

Jólabloggið

Jæja, jólabloggið kemur bara snemma þetta árið.
Síðustu dagar hafa þotið áfram á ég veit ekki hvaða hraða. Mamma og pabbi komu í heimsókn í nokkra daga. Skáluðum fyrir tólfunni, röltum um bæinn, fórum útað borða, kíktum í jólatívoli, en gáfumst fljótt upp á því sökum mannmergðar, en fórum bara í leikhús í staðinn og sáum nútímaútfærslu á hetubrjótnum, alveg geggjuð sýning.








Þegar foreldrarnir yfirgáfu okkur aftur, fluttum við Smári yfir til SIggu frænku, en þau skelltu sér til LA um jólin, og við berum þar með ábyrgð á hundi, húsi og bíl. Þar sem við erum því með risaíbúð ákvaðum við að splæsa í aðeins stærra jólatré en ætlunin var (missti mig samt ekki alveg, það ernú kreppa) En ég fékk alvöru jólatré og við fjárfestum líka í æðislegum antik jólatrésfæti, luv it. Jólatréð stendur því fallegt og flott í stóru stofunni, og Jojo, hundurinn, er búinn að vera voða duglegur að láta það eiga sig. (hafði satt að segja mestar áhyggjur af því að hundsspottið myndi taka sig til og míga á það, en það hefur sem betur fer ekki gerst)






Jólin byrjuðu síðan formlega á föstudaginn þegar við fengum Jenna og Svölu, vini smára, í mat. Íslenskur humar, lambakjöt, eðalrauðvín og vanilluís með marssósu í desert...gerist ekki mikið betra.



Anja bauð okkur gömlu lesgrúppunni í julehygge í dag. Ætlunin var að skála í glögg og borða eplaskífur, en það er víst ekki í boði lengur að drekka glögg í danmörkinni því það er bara uppselt allsstaðar. Það á semsagt ekki að drekka glögg þegar það er komið svona nálægt jólum, úps man það næst. Börnin undu sér vel og Asbörn og Helga María voru farin að leika saman á fullu eftir smá aðlögunartíma. Ég var að pælí að taka barnið mitt, hann Jojo með, það sem hinar ætluðu að mæta með sín börn, en ég vildi ekki hætta á hann myndi pissa á gólfið hjá önju, þannig að það verður bara að bíða betri tíma að ég mæti með barn í þennan jólahitting.



En næst á dagskrá er svo bara undirbúa brottför til þýskalands á morgun. Hundinum verður hent í pössun til annarrar frænku sem fannst í köben meðan við skötuhjúin skellum okkur í jólamat til "ömmu". Ég reikna ekki með því að ég verði í miklu netsambandi næstu dagana, en ef einhvern langar að ná í mig þá verð ég með danska símann minn á mér, as usual.


Vona að allir hafi það hrikalega gott um jólin
God Jul alle sammen

Jólaknús frá okkur

Skrifað 22.12.2008 kl. 8:56 af Hanna Lilja

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

9.12.2008

Fyrsta tólfan í hús

Það hlaut að koma að því....fór loksins að verja bachelorritgerðina í dag, Og það gekk svona líka glimrandi vel að stelpan kom skælbrosandi út með fyrstu 12una sína í farteskinu. (fyrir þá sem ekki þekkja danska éinkunnakerfið þá er 12 sko best) Ekki lítið hamingjusöm með árangurinn, enda búin að leggja mikið á mig við ritgerðarvinnuna.

Kallinn minn er líka búinn að vera að standa sig vel í prófatörn, búin með eitt sem gekk svaka vel, og tvö eftir. Það verður mikill léttir 18.des þegar hann verður buinn og við getum tekið smá jólabreik, þar sem ég fer ekki í næsta próf fyrren 17.janúar. Ég verð nú líka að viðurkenna að það verður gaman að sjá andlitið á honum aftur, en hann tók uppá því að safna skeggi í prófatörninni...og er vægast sagt orðinn vel loðinn. Stefnir beint í dökkt jólasveinaskegg. Það er hörð keppni, því Öddi vinur hans í Álaborg gerðist líka skeggsafnari, og er væntanlegur til kaupmannahafnar 20.des, en þá mun ég dæma um það hver vinningshafinn er ;)

Annars erum við búin að kaupa miða til Þýskalands 23.des, en við ætlum að eyða jólunum með ömmu smára og móðursystur, Jebbs, I won´t bee home for christmas....í fyrsta skipti sem ég er ekki með familiunni um jólin. Svoldið blendnar tilfinningar í augnablikinu, en annars bara skemmtilegar að prufa eitthvað nýtt. Mamma og pabbi eru líka að koma á fimmtudaginn og verða yfir helgina, þannig að ég fæ smá "litlujól" með þeim.Við komum svo til kaupmannahafnar aftur 28.des og ætlum að halda áramót hérna. Ekki ennþá komið neitt plan, en ég er að vonast til að geta hóað þeim fáu íslendingum sem ég þekki sem verða á landinu, í smá gamlársparty. Held að það væri bara stuð.

En í kvöld ætla ég að skála í ódýru rauðvíni fyrir tólfunni minni....djöfull var þetta gott hjá mér ;)

Skrifað 9.12.2008 kl. 16:07 af Hanna Lilja

Bein slóð á færslu

4 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

5.12.2008

...

Það er ekkert grín að koma heim í kolniðamyrkri, eftir ýkt langan dag, nýkomin úr ræktinni, með alltof þunga skólatösku, íþróttatösku OG tvo innkaupapoka...búandi á 6.hæð!! Þið sem ekki hafið komið heimsókn...þá er sko enginn lyftulúxus í mínum stigagangi. Neinei.

Þrátt fyrir að ég hafi verið alveg að líða útaf af blóðsykurfalli þegar ég loksins kom heim, þá er alltaf voða gott þegar maður á svona effektiva daga. Og ég bætti um betur. Við Helga settum upp svunturnar og komum okkur í bakstursgírinn, skelltum kremi á sörurnar og hentum okkur útí smá tilraunastarfsemi við konfektgerð. Við gleymdum okkur aðeins og alltí einu var klukkan orðin alltof margt, svona miðað við að ég þurfti að vakna um 6.30 til að komast á réttum tíma uppá spítala í morgun. Þetta varð því til þess að ég var frekar sybbin og utanvið mig í tímum í dag, hafði ekki mikið til málanna að legga við skipulagningu á meðferðarplani fyrir ´"sjúklinginn" okkar. Einsgott að þetta var bara gömul sjúkrasaga sem við fengum, annars hefði getað farið illa ....en ég sé allavega fram á góða lærdómshelgi, með fullt af sörum og konfekti. Smári er að fara í sitt fyrsta próf á mánudaginn, þannig að það verður lítið um jólabjór þessa helgina ;) Sem er bara ágætt, þá get ég nýtt helgina til að undir búa bachelrovörnina mína, sem ég fer í á þriðjudaginn. Sæll hvað það verður gott að klára það....þá er "bara" 6 tíma skriflegt próf eftir í janúar ;)

Skrifað 5.12.2008 kl. 10:53 af Hanna Lilja

Bein slóð á færslu

4 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

1.12.2008

1.des

Skoða nánar

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 8
Gestir í dag: 3
Flettingar í gær: 26
Gestir í gær: 13
Samtals flettingar: 43541
Samtals gestir: 20534
Tölur uppfærðar: 21.3.2010 11:03:15

Vafraðu um

Nafn:

Hanna Lilja og Smári

Heimilisfang:

Kaupmannahöfn

Staðsetning:

Danmörk

Tenglar