|
Lífið í Litlu Stórborginni |
|
Blogg24.2.2009SímafjörEftir mikið maus og ves er blessaður Smartsíminn frá TAL orðinn nothæfur. Við erum semsagt komin með íslenskan heimasíma, þannig að núna geta allir hringt í okkur og það kostar bara það sama og að hringja í íslenska heimasíma, ýkt sniðugt. Þannig að bara go crasy, og hringið að vild. Nr er 496 1334. Við viljum endilega heyra meira í fólki :) 20.2.2009NúllstilltÞað er margt búið að gerast síðan síðast. Í fyrsta lagi er ég komin með bachelorgráðu í læknisfræði (!!) sem þýðir að ég er hálfur læknir. Einsog þetta nám virtist endalaust langt þegar ég var að byrja, þá er ég bara hálfnuð með það nú þegar. Helga er flutt í nýju íbúðina sína og Smári er fluttur inn á Ravnsborggade. Þar með erum við buin að taka næsta skref í sambandinu og komin í sambúð. Eftir 3 daga í sambúð fluttum við yfir til Siggu frænku og fórum að æfa okkur í uppeldinu í nokkra daga....helvítis hundurinn tekur nú ansi vel á taugarnar, þannig að ég hugsa að við verðum tilbúin í hvað sem er þegar kemur að fjölgun í fjölskyldunni (sem verður samt ekki alveg strax, engar áhyggjur) ;) Í miðju hundauppeldi tókum við algjöra skyndiákvörðun og keyptum flugmiða til Íslands á uppsprengdu verði. En við ákváðum samt að leyfa okkur að fara aðeins heim, enda komin með ágætis fráhvarfseinkenni. Er búin að vera undir miklu álagi undanfarið og var komin í einhvern stress/kvíða pakka sem ég var ekki að fíla, og þurfti bara á því að halda að núllstilla mig, slaka aðeins á og hitta fjölskylduna mína, komast í sund og sjá fjöllin. Fá smá ísland beint í æð. Flugum svo til íslands daginn eftir. Íslandsheimsóknin var samt ekki nógu löng til að við næðum að gera allt sem okkur langaði, 5 dagar er full stuttur tími til að bæta upp 6 mánaða fjarveru. Ofan á það veiktist ég og þurfti að fara í nokkrar skemmtilegar læknarannsóknir, þannig að ég varð að skipuleggja dagana útfrá læknaheimsóknum. Sem betur fer kom þó allt vel út, er með fín og falleg nýru sem virka rétt og vel, smá ör á þeim síðan í gamla daga, en það er ekkert alvarlegt að mér allavega :) Ég sendi manninn minn út aftur á undan mér, því hann þurfti að fara aftur í skólann, en þar sem ég er í lengra fríi nuna ákvað ég að vera aðeins lengur í faðmi fjölskyldunnar. Sem var yndislegt. Ég flaug síðan til dk í gær. Þó ég væri ekki beint tilbúin að fara út aftur, þá var mjög gott að koma og hitta Smárann minn aftur. Framundan eru nokkrar frekar rólegar vikur með tveim minni kúrsum, en svo byrjar bara klinikin á Herlev spítala 30.mars. Svo ég er klár í næstu törn, núllstillt og fín eftir íslandsferðina. En núna ætla ég að fara að ganga frá hérna og þrífa íbúðina og taka svo myndir og skella hérna inná bloggið, íbúðin er allt önnur eftir að við endurskipulögðum, þetta er bara einsog ný íbúð. Eigum samt eftir að fínpússa ýmislegt, setja myndir á vegginn og svona. Það kemur bara í rólegheitunum. Flettingar í dag: 13 Gestir í dag: 6 Flettingar í gær: 26 Gestir í gær: 13 Samtals flettingar: 43546 Samtals gestir: 20537 Tölur uppfærðar: 21.3.2010 12:59:39 |
Vafraðu umEldra efni Tenglar
|