|
Lífið í Litlu Stórborginni |
|
Blogg2.6.200910 áraÍ dag á pabbi minn 10 ára lífgjafarafmæli. 2.júní 1999 lögðust hann og Kjartan bróðir hans undir hnífinn á Ríkisspítalanum í kaupmannahöfn, þar sem kjartan gaf pabba annað nýrað sitt. Og hvað er það annað en lífgjöf? Þannig að fyrir okkur á pabbi tvo afmælisdaga, og í dag varð hann 10 ára....og finnst hann fáranlega þroskaður miðað við aldur ;) Árið 2006 gerðust þeir bræður aftur hetjur og hlupu Kaupmannahafnarmaraþonið saman, með sitthvort nýrað úr kjartani ;) Pabbi var þar með fyrsti íslenski líffæraþeginn, sem vitað er um, sem hleypur maraþon. Var einhver að tala um nýrnasjúkling? Ekki ég allavega!!! hrikalega sáttir að loknu hlaupi Annars er ég bara búin að liggja í móki síðustu daga í Örstedspark, nýja uppáhaldsgarðinum mínum, í sólbaði, með iPod og góða bók (Subjektiv og Objektiv undersögelse....smá upprifjun fyrir prófið, græt það ekki að vera laus við Medicinsk kompendium þetta vorið) það tók alveg heil 3 tansession fyrir mig að ná smá lit, komin með ágætis bikinífar, og það er nú meira en ég er vön að fá, þannig að ég er bara sátt með afraksturinn. Núna eru síðan bara 2 dagar á Herlev og svo aftur frí, þar sem Smári var að klára próf og við ætlum því að skella okkur aðeins til Lubeck fyrir næstu törn, og fá vonandi meiri sól þar. Ljúft líf að vera á 1.önn í kandidatnum ;) ps. það er akkúrat einn mánuður í að við komum til íslands....er ekki einhver farinn að plana party, grill, kokteila og útilegur??? Flettingar í dag: 10 Gestir í dag: 5 Flettingar í gær: 44 Gestir í gær: 19 Samtals flettingar: 43457 Samtals gestir: 20494 Tölur uppfærðar: 18.3.2010 11:42:17 |
Vafraðu umEldra efni Tenglar
|