Lífið í Litlu Stórborginni

Blogg

10.9.2009

Fleiri myndir...

...komnar í albúmið. Tek þetta svona í skömmtum ;)  Enjoy





Skrifað 10.9.2009 kl. 14:05 af Hanna Lilja

Bein slóð á færslu

5 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

7.9.2009

Aftur til Köben

Við erum mætt aftur í Litlu Stórborgina okkar. Erum voða glöð að vera komin í íbúðina okkar aftur, alveg ready að komast aftur í skólarútínuna. VIð áttum yndislegar 8 vikur á íslandi. Ég fékk vinnu á Hjúkrunarheimilinu Eir sem staðgengill hjúkrunarfræðings og var það fínasta reynsla fyrir mig, og mun klárlega nýtast mér áfram í náminu. Smári dútlaði í hinu og þessu, og við reyndum að nýta vaktafríin mín vel til að skjótast út úr bænum, þá helst uppí Húsafell í bústað mömmu og pabba. Annars ferðuðumst við ekki eins mikið og ég hefði viljað, en það var yndislegt að vera uppí bústað og slaka á í sveitasælunni og góða veðrinu. Vorum samt dugleg að fara í dagsferðir. Kíktum á Þingvöll, Stykkishólm, Laugarvatn í bústað tengdó og Flúðir til Ömmu og Harry. Svo má nú ekki gleyma því að við sváfum eina nótt í tjaldi....fyrir utan bústað foreldra minn hahaha ;)  Það sem stendur uppúr er þó klárlega brúðkaupin tvö sem ég fór í, og gæsanirnar að sjálfsögðu. Auður og Unnar giftu sig 18.júlí og Hanna Björt og Logi 29.ágúst, bæði ótrúlega skemmtilegir og yndislegir dagar ;)

Mér finnst nú alltaf myndir segja meira en þúsund orð, þannig að ég ætla ekkert að vera að bulla meira um þetta sumar sem var að líða. Ég er búin að henda inn 5 nýjum albúmum núna, bæði frá byrjun sumars hérna í DK, og svo fyrstu vikunum á íslandi....það er ennþá hellingur eftir, og það kemur á næstu dögum.




Skrifað 7.9.2009 kl. 14:01 af Hanna Lilja

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 48
Gestir í dag: 20
Flettingar í gær: 26
Gestir í gær: 13
Samtals flettingar: 43581
Samtals gestir: 20551
Tölur uppfærðar: 21.3.2010 22:20:34

Vafraðu um

Nafn:

Hanna Lilja og Smári

Heimilisfang:

Kaupmannahöfn

Staðsetning:

Danmörk

Tenglar