|
Lífið í Litlu Stórborginni |
|
Blogg15.10.2009EfterårsferieÞessa vikuna er svokölluð efterårsferie í Danmörku. Allir grunnskólar og menntaskólar eru lokaðir og margar háskólar líka, þar á meðal DTU, skólanum hans Smára. Og hann unir vel í sínu fríi, en það er enginn svona luxus í læknadeildinni. Ég neyðist því til að vakna ein í kulda og myrkri og hjóla af stað á spítalann minn og læra um hjartasjúkdóma meðan Smári kúrir áfram í heitu rúmi ;) Ég var nú samt svo heppin að eiga langa pásu um miðjan dag í dag og átti ég því eldheitt lunchdeit með manninum mínum í miðbæ Kaupmannahafnar á milli fyrirlestra. Ég hef ekki alveg getað ákveðið hvað mér á að finnast um þessa Efterårsferie. Fannst eitthvað svoldið skrýtið að heilt land geti bara setið í lamasessi í heila viku, því foreldrar eru líka að taka sér frí til að börnin séu ekki ein í reiðuleysi. Það er uppselt á allar myndir í bíó, tivolí er troðið, og ekki séns að fá leikhúsmiða. En þar sem við Smári röltum um bæinn eftir að hafa borðað okkur södd, þá rákumst við á fjöldan allan af glöðum börnum með foreldrum sínum, búin að fá að kaupa sér eitthvað skemmtilegt, og búin að fá sér gott að borða saman, og á leiðinni að fara að gera eitthvað skemmtilegt það sem eftir var dags. Sum voru með ömmum eða öfum, sem eru kannski hætt að vinna og finnst bara skemmtileg tilbreyting að eyða stund með barnabarninum. Ég sá efterårsferie í allt öðru ljósi. Þetta er bara qualitytime fyrir fjölskylduna. Og foreldrarnir voru actually að gefa sér tíma með börnunum sínum, gera það sem þau langaði, og spjalla og hafa það notalegt saman í haustkuldanum. Efterårsferien er kannski ekki svo slæm eftir allt saman. Jafnvel þó ég þurfi að mæta í skólann ;) ![]() ![]() 4.10.2009kraftaverkin gerast enn.......nokkur ný ágústalbúm eru komin inn!!! Ég kom þó einhverju í verk þennan góða sunnudag ;) Hlýt að fá smá plús í kladdann fyrir það ;) endilega hafið samband ef ykkur vantar lykilorðið. Flettingar í dag: 1 Gestir í dag: 1 Flettingar í gær: 53 Gestir í gær: 17 Samtals flettingar: 43246 Samtals gestir: 20409 Tölur uppfærðar: 14.3.2010 00:20:26 |
Vafraðu umEldra efni Tenglar
|