Lífið í Litlu Stórborginni

Blogg

20.12.2009

20 vikur

Jólin nálgast og meðgangan er hálfnuð...eigum við eitthvað að ræða það? Finnst nú alveg ótrúlegt hvað þetta er fljótt að líða, og ég veit að næstu 20 vikur eiga eftir að líða ennþá hraðar því það er svo hrikalega mikið framundan hjá okkur. Skil ekkert í fólki sem finnst 9 mánaða meðganga alltof löng....þetta flýgur áfram! við vorum í 20 vikna sónar í síðustu viku. Krílið okkar kom að sjálfsögðu hrikalega vel útúr því, fullkomlega heilbrigt og velskapað, allt á sínum stað. Því líður greinilega voða vel þarna inni, lá í makindum sínum á fylgunni og slappaði af. Var ekkert mikið fyrir að snúa sér of mikið fyrir okkur, hvað þá sýna okkur hvort það leyndist lítill typpalingur á milli lappanna eða ekki. Þannig að við fengum ekki að vita kynið með vissu. Og þar sem við vorum buin að taka þá ákvörðun að fá að vita hvort kynið þetta er, og orðin mjög forvitin og spennt að fá að vita það, þá ákváðum við að panta annan sónar á privat stofu til að tékka betur á þessu. Við fengum tíma á morgun, mánudag, þannig að þá kemur þetta vonandi í ljós. Vona að krílið verði í meira stuði þá ;)

Við skelltum okkur til Roskilde í gær til Ödda í julefrokost á íslenska mátann. Allir komu með eitthvað á hlaðborðið og svo var étið .... já og drukkið. Við Smári erum búin að vera í bumbukeppni síðustu vikur og hefur hann hingað til unnið mig. En eftir matinn í gær sáum við að loksins, loksins, lítur út fyrir að ég sé buin að ná markmiði mínu og er komin með stærri bumbu, þó Smári nái nú að blása sína ansi vel út, sérstaklega eftir góðan mat ;)



 Danmörk er þakin hvítum snjó þessa dagana, og ég er ekki frá því að það hafi verið heldur meiri snjór í Roskilde en hérna í miðbæ kaupmannahafnar, enda verður snjórinn hérna fljótt að brúngráu slabbógeði. Við fengum því jólafíling beint í æð þegar við röltum útá lestarstöð í nótt á leiðinni til heim aftur. Brakandi snjórinn, jólaljós og kyrrð.

Hérna er allt að verða ready fyrir jólin. Ætlum að fara á morgun eða hinn að höggva jólatré, svo vantar bara að pakka inn gjöfunum frá okkur til okkar, skreyta tréið, koma pökkunum fyrir og kaupa jólamatinn. Já og kannski aðeins að fínpússa íbúðina ;)

Kem með fréttir eftir morgundaginn....verður það Smárason eða Smáradóttir???

Skrifað 20.12.2009 kl. 12:13 af Hanna Lilja

Bein slóð á færslu

3 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit
Til baka

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 11
Gestir í dag: 4
Flettingar í gær: 26
Gestir í gær: 13
Samtals flettingar: 43544
Samtals gestir: 20535
Tölur uppfærðar: 21.3.2010 12:26:01

Vafraðu um

Nafn:

Hanna Lilja og Smári

Heimilisfang:

Kaupmannahöfn

Staðsetning:

Danmörk

Tenglar