Lífið í Litlu Stórborginni

Blogg

14.3.2010

Vika 32

Heilinn heldur áfram hröðum þroska. Húðin breytist talsvert og verður barnið nú feitara en áður og svonefnd barnafita sest á það. Dúnmjúku hárin sem umluku barnið meðan húðin var að þroskast fara að hverfa. Bein halda áfram að styrkjast og vaxa og krefst sá þroski mikils magns af kalsíum. Barnið er hér 1,9 kg að þyngd og 40,5 cm að lengd.


Eigum við eitthvað að ræða það að ég er með ca 2 kg manneskju inní mér? Ekki furða að það sé mikið brölt í gangi, örugglega farið að þrengja svoldið að honum ;)

Skrifað 14.3.2010 kl. 10:07 af Hanna Lilja

Bein slóð á færslu

1 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

12.3.2010

37 pappakössum, mörgum lítrum af málningu og tveimur prófum seinna:

Þá erum við loksins flutt og búin að koma okkur vel fyrir í nýju íbúðinni okkar. Það er að verða rosa kósí hérna hjá okkur og okkur líður voða vel í úthverfinu. Erum núna bara að vinna í því að finna bíl, svoldið vesen að vera bíllaus hérna í sveitinni, þó það gangi svosem alveg. Bara aðeins erfiðara, sérstaklega þegar ég þarf að vagga með bumbuna útí loftið uppí strætóskýli sem er 15 mínútna labb í burtu ;) Svo vonandi finnum við bíl áður en ég verð ennþá meira ólétt. 

Þó ég hafi engan vegin verið að standa mig í að setja nýjar bumbumyndir hérna inn þá hefur bumban mín sko heldur betur verið að vaxa. Alltí einu finnst mér ég voðalega ólétt eitthvað, sem er bara gaman. Sá litli spriklar og spriklar og finnst greinilega ekki alveg nógu mikið pláss þarna inni, held stundum hreinlega að hann ætli út um naflann ;) Skil hann svosem vel, núna eru allir vinir hans úr bumbugrúppunni mættir í heiminn, tveir litlir strákar og ein prinsessa, skil vel að hann sé spenntur að hitta þau ;) En við verðum víst áfram í bumbufjörinu í nokkrar vikur í viðbót. 

Verðandi amma og afi kíktu í heimsókn síðustu helgi. Þau komu með hálffullar töskur af barnafötum og prjónapeysum frá langömmunum og auk þess var farið í babysam og HM og keypt aðeins meira á prinsinn. Við fjárfestum líka í barnavagni sem verður vonandi kominn í lok apríl ;)

Ég á tvær vikur eftir í verknáminu núna, stutt í langþráð orlof ;) Bumban er alveg farin að síga aðeins í á spítalanum, en þetta gengur samt voða vel og ég hef það gott. En auðvitað voða gott að vita af því að fæðingarorlofið er handan við hornið ;) verður næs að njóta þess að sofa út, slaka á og undirbúa barnaherbergið, prjóna og svona. 

Annars er ég búin að bæta nokkrum myndum í bumbualbúmið, klapp fyrir mér ;) 




Afi og amma að passa bumbugullið

Skrifað 12.3.2010 kl. 14:53 af Hanna Lilja

Bein slóð á færslu

3 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

18.1.2010

It´s picture time

Þá er prófageðveikin búin og ég er búin að vera fáranlega dugleg í gær og í dag að henda inn helling af myndum. Það bíða því 4 ný albúm eftir því að vera skoðuð...þannig að ef þér leiðist í skólanum/vinnunni þá....;) Er líka búin að setja nokkrar nýjar og nýlegar myndir í bumbualbúmið. 

Og hérna kemur 9.janúar myndin, aðeins á eftir áætlun, en ég lofa að hun var tekin á réttum tíma ;) 


5 mánaða bumba

Smári vill ekki að mér líði illa yfir stækkandi maganum og er því að safna í bumbu líka. Þar er bjórinn góð hjálp ;) 



Annars verðið þið bara að kíkja á myndirnar og lesa það sem ég skrifaði undir til að vita hvernig jólin voru hjá okkur. Nenni ekki að gera eitthvað svaka blogg. Í hnotskurn áttum við alveg yndisleg jól, hrikalega kósí að vera bara tvö ein á aðfangadag. Mæli algjörlega með því að prufa þetta. Smári toppaði síðan allt þegar hann fór á skeljarnar og bað mig að giftast sér, einsog þið flest vitið. Ég sagði auðvitað já, og við stefnum á brúðkaup innan 2 ára ;) Þetta var semsagt alveg æðislegt allt saman. Restin af jólunum fór bara í að borða (vorum reyndar ekkert voðalega dugleg við það, það var svo mikill afgangur af jólamatnum að það var eiginlega vandræðalegt, og desertinn ekki borðaður fyrren seint á jóladagskvöld), hitta gott fólk, slaka á með tærnar uppí loft (þar kom nýju skemillinn sér vel), horfa á LOTR (þar kom skemillinn sér líka vel) og LÆRA!! Vúhú. Eyddum svo áramótunum með Grétari og Önnu uppá Kagså kolleginu, og tókum þar á móti 2010, sem verður mjög svo spennandi og viðburðarríkt ár hjá okkur turtildúfunum, þar sem okkar bíður eitt stæðsta hlutverk sem maður tekur að sér í lífinu ;) 

Framundan er svo að pakka búslóðinni í kassa og flytja okkur uppá Kagså. Svo er að mála og pússa gólf í gömlu íbúðinni, svo við getum skilað henni af okkur í fínu standi, og þá tekur við annað próf hjá mér, klinik, og svo bara fæðingarorlof....ji hvað það verður næs. Og shit hvað þetta á eftir að líða hratt. En talandi um að vera komin í pakkann....ólétt, trúlofuð OG að flytja í úthverfi. Jiminn eini, það sem hlutirnir geta breyst á 2 árum ;) 



Skrifað 18.1.2010 kl. 18:38 af Hanna Lilja

Bein slóð á færslu

5 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 23
Gestir í dag: 12
Flettingar í gær: 67
Gestir í gær: 23
Samtals flettingar: 43335
Samtals gestir: 20443
Tölur uppfærðar: 15.3.2010 15:30:24

Vafraðu um

Nafn:

Hanna Lilja og Smári

Heimilisfang:

Kaupmannahöfn

Staðsetning:

Danmörk

Tenglar